VEGNA aukinnar umræðu um aðild aðstandenda að búsetu- og endurhæfingarmálum geðsjúkra vill hópurinn Hugarafl benda á mikilvægi þátttöku notenda.
VEGNA aukinnar umræðu um aðild aðstandenda að búsetu- og endurhæfingarmálum geðsjúkra vill hópurinn Hugarafl benda á mikilvægi þátttöku notenda.
„Eins og ráðherra er kunnugt um kom fram á ráðherrastefnu WHO í Helsinki 2005 að auka beri vægi notenda í stefnumótun um geðheilbrigðismál. Því vill Hugarafl benda á að innan hópsins eru notendur sem hafa víðtæka þekkingu á stöðu geðsjúkra í dag. Hópurinn vill taka þátt í stefnumótun stjórnvalda um geðheilbrigðismál.
Félagsmálaráðherra hefur sagt opinberlega að fyrirhugað sé að kalla til aðila sem þekkja til þessara mála. Við óskum því eindregið eftir að vera kölluð til viðræðna hið fyrsta,“ segir í fréttatilkynningu frá Hugarafli.








