Síðasta föstudag fengum við góða gesti í heimsókn frá félagsmálaráðuneytinu. Þorsteinn Víglundsson félagsmálaráðherra heillaðist af öllu lífinu í húsinu. Formaðurinn Málfríður Hrund Einarsdóttir og Svava Arnardóttir iðjuþjálfi Hugarafls sýndu honum húsið og kynntu starfssemina. Tónlistin ómaði frá Tónhugum, unga fólkið spjallaði við Þorstein í góða stund, Drekasmiðjan bauð hann velkomin og greint var frá málefni dagsins. Þorsteinn fékk að velja sér mynd af sýningu Stefáns Jörgens og valdi auðvitað Óðinn! Að lokum eldhússpjall og dásamlegar vöfflur í boði bakara hússins.
Við mælum með
Færslusafn
Efnisorð
mótmæli geðlyf endurhæfing GET skjólstæðingar heilsugæsla fagfólk aðstandendur Klikkið Unghugar fordómar notendur valdefling Samfélag covid-19 Hugarró LSH batasögur úrræði bataferli bjargráð Hugarafl Andlegar áskoranir geðheilbrigðismál meðferð Styrkur Samkomubann hugmyndafræði bati Heimsókn til Hugaraflsfólks







