Skip to main content

Geðveikar batasögur hafa verið gefnar út í tvígang. Þar stíga á stokk Hugaraflsmenn, deila sögu sinni á einlægan hátt, baráttunni, sársaukanum, batanum, voninni og draumunum sem geta orðið ansi fjarlægir í veikindaferlinu. Hér er á ferðinni afar mikilivæg heimild um bataferli fólks með geðraskanir sem á erindi til allra og er mikilvægt fræðsluefni sem ætti að vera til í öllum skólum.
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru því frá mörgu er að segja. Það er Hugarafli mikilvægt að vera í góðu sambandi við alla sem áhuga hafa á málaflokknum, láta sig varða og vilja leggja af mörkum. Þess vegna hefur Hugarafl markvisst lagt áherlsu á að kynnast ráðamönnum, stefnumótandi aðilum, fagfólki, aðstandendum og öðrum sem gætu haft áhrif og stuðlað að breyttum viðhorfum í íslensku geðheilbrigðiskerfi. Af nægu er að taka, huga þarf að bættu viðmóti, aukinni þekkingu á bataferli, aukinni áherlsu á þá staðreynd að hægt sé að ná bata og mikilvægi þess að nýta reynslu þeirra sem til þekkja.