Skip to main content

Persónuverndarstefna Hugarafls Notendastýrðrar-starfsendurhæfingar

1. Persónuverndarstefna Hugarafls
Hugarafl Notendastýrð starfsendurhæfing, kt. 460204-2240, Síðumúla 6, 108 Reykjavík, (einnig
vísað til sem „félagið“) leggur ríka áherslu á að tryggja öryggi, trúnað og lögmæta notkun
persónuupplýsinga sem unnið er með innan starfsemi félagsins. Félaginu er nauðsynlegt að vinna
og skrá hinar ýmsu persónuupplýsingar í því skyni að veita bestu mögulegu þjónustu sem völ er á
og til að sinna þeim verkefnum sem félaginu eru falin. Því er persónuvernd mikilvæg í allri
starfsemi félagsins.

Í persónuverndarstefnu þessari er greint frá því hvernig Hugarafl stendur að vinnslu
persónuupplýsinga. Vinnsla merkir aðgerð eða röð aðgerða þar sem persónuupplýsingar eru
unnar, svo sem söfnun, skráning, flokkun, varðveisla, skoðun, notkun, miðlun með framsendingu
eða aðrar aðferðir sem gera upplýsingarnar tiltækar, eyðing eða eyðilegging. Félagið vinnur með
persónugreinanlegar upplýsingar um félagsmenn, styrkþega, styrktaraðila, styrkgjafa og
starfsfólk félagsins.

Persónuverndarstefna Hugarafls er byggð á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu
persónuupplýsinga. Í undirköflum persónuverndarstefnu þessarar er því nánar lýst hvers konar
persónuupplýsingar er að ræða hverju sinni, hvaðan þeirra er aflað og í hvaða tilgangi, á hvaða
grundvelli heimildar vinnslan fer fram, með hverjum persónuupplýsingum er deilt, hver viðmið
eru varðandi geymslutíma persónuupplýsinganna og réttindi vegna notkunar á
persónuupplýsingum.

2. Hvað eru persónuupplýsingar?
Persónuupplýsingar eru hvers kyns upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan
einstakling, þ.e. þær upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til tiltekins einstaklings.
Þau gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar.

3. Persónuupplýsingar sem Hugarafl vinnur
Til að geta veitt þá þjónustu sem Hugarafl gerir reynist félaginu nauðsynlegt að vinna með
persónuupplýsingar félagsmanna sem og annarra. Vegna fjölbreyttrar starfsemi Hugarafls berast

Skincare made

simple pure honest custom for you.