Hugarafl gefur út bæklinga og þýðingar á erlendu efni um bata og batahvetjandi leiðir, gefur út fræðsluefni fyrir notendur og aðstandendur þeirra, félagsmenn skrifa greinar og viðtöl. Vegvísir Hugarafls hefur verið gefin út þrisvar sinnum og er upplýsingabæklingur um þjónustu við geðsjúka og hvarvetna hlotið mikla athygli. Félagið heldur út virkri heimasíðu sem miðlar upplýsingum um það sem er á döfinni hverju sinni, birtir reynslusögur og annað fræðandi efni um
